Arnar Bjarki seldur til Bröndby (Staðfest)

Arnar Bjarki Gunnleifsson fer til Danmerkur í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gylfi og Arnar Bjarki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tilkynnti rétt í þessu að Arnar Bjarki Gunnleifsson hefði verið seldur til danska stórliðsins Bröndby. Hann er 15 ára unglingalandsliðsmaður og mun ganga í raðir Bröndby í janúar 2027. Hann verður 16 ára í nóvember og má hann ekki ganga í raðir danska félagsins fyrir þann tíma.
Fótbolti.net greindi frá tíðindunum fyrir þremur vikum síðan og í millitíðinni varð Arnar Bjarki næstyngsti markaskorari í sögu efstu deildar þegar hann skoraði gegn KA. Hann fylgdi því á eftir og skoraði líka gegn Víkingi og varð sá yngsti í sögunni til að skora í tveimur leikjum í röð.

TENGT EFNI
Danskt stórlið að kaupa Arnar Bjarka
Tilkynning Breiðabliks
Arnar Bjarki hefur komið eins og stormsveipur inn í aðallið Breiðabliks undanfarna mánuði og staðið sig frábærlega. Hann hefur komið við sögu í 13 leikjum í deild og bikar og gert tvö mörk. Þá átti hann frábæra innkomu í bikarleiknum gegn Víkingum sl. sunnudag, þegar Breiðablik tryggði sér þátttökurétt í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Arnar Bjarki, sem er 15 ára gamall, mun ganga til liðs við Kaupmannahafnarliðið í janúar 2027. Við munum því áfram njóta krafta Arnars Bjarka út þetta ár. Við óskum Arnari Bjarka kærlega til hamingju með samninginn

Mynd: Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson