Heimild: Þungavigtin
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, staðfestir að það hafi verið læti í göngunum eftir 4-1 útisigur KR gegn Val í Bestu deildinni síðasta laugardag.
Það voru hvöss orðaskipti milli manna, nokkrir leikmenn KR voru ósáttir og sökuðu Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson, varnarmann KR, í þindina.
Það voru hvöss orðaskipti milli manna, nokkrir leikmenn KR voru ósáttir og sökuðu Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson, varnarmann KR, í þindina.
Í viðtali við Þungavigtina gefur Aron lítið fyrir skýringar Hermanns á því sem gekk á. Aron var spurður að því hvort það hafi verið alvöru læti.
„Já, það var það. Ég efa það að einhver sem tapar fótboltaleik 4-1 komi í einhverju góðu gríni og kýli menn létt, ef þeir ætla að kýla mann yfirhöfuð. Það var ekkert grín þarna, þetta var algjörlega fáránlegt. Það er búið að grafa þetta sögðu þeir en það hefði mátt sleppa þessu," sagði Aron í Þungavigtinni en Vísir skrifaði upp úr ummælum hans.
Hermann sagði í Innkastinu hér á Fótbolta.net á sunnudaginn að hann væri búinn að ræða við Ástbjörn og KR-inga, og að málinu væri lokið.
„Það eru allir búnir að tala saman og þessu máli er lokið. Ef einhverjir eru ósáttir þá bara biðst maður afsökunar á að hafa gert eitthvað klaufalega sem átti að vera góðlátlegt grín," sagði Hermann og sagði málið hafa verið blásið upp.



