Fotbolti.net
03.05.26 - 23:14
Elvar Geir Magnússon

Hemmi búinn að ræða við KR-inga og segir málið að baki

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var í viðtali í Innkastinu.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var í viðtali í Innkastinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það eru allir búnir að tala saman og þessu máli er lokið," segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, um fréttaflutning af látum sem voru í göngunum eftir að Valur tapaði 1-4 fyrir KR í Bestu deildinni.

Hermann talar um að úlfaldi hafi verið gerður úr mýflugu í umfjöllun um málið.

„Maður vill bara hreinsa þetta út, ef einhverjir eru ósáttir þá bara biðst maður afsökunar á því að hafa gert eitthvað klaufalega sem átti að vera góðlátlegt grín," segir Hermann en rætt var við hann í Innkastinu hér á Fótbolta.net.
Læti í göngunum eftir leik og Hemmi sakaður um að hafa gefið leikmanni KR högg
TENGT EFNI

Læti í göngunum eftir leik og Hemmi sakaður um að hafa gefið leikmanni KR högg

Það voru einhver hvöss orðaskipti milli manna í göngunum eftir leik, nokkrir leikmenn KR voru ósáttir og sökuðu Hermann um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson í þindina.

„Við mætumst aðeins í göngunum en þetta var bara góðlátlegt grín með bros á vör sem maður gerir dagsdaglega á æfingum og í kringum leiki. Það brá einhverjum aðeins við það en enginn er slasaður og það var ekkert ofbeldi í gangi svo við höfum það alveg á hreinu."

Hermann hefur rætt við Ástbjörn og KR eftir þetta.

„Ég er búinn að heyra í Ástbirni og það er allt í toppmálum. Honum brá kannski aðeins en það voru engin leiðindi í þessu af minni hálfu. Það er leiðinlegt að þetta hafi endað með að verða einhverjar fyrirsagnir eftir skemmtilegan fótboltaleik. KR-ingar eru hörkusterkir og Ástbjörn er toppdrengur og toppleikmaður, ég hef ekkert nema gott um hann að segja."

Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.