Börsungar vilja varnarmann Bournemouth - Man Utd vill tvo leikmenn - Igor Thiago til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   mán 06. júní 2022 21:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Alex: Það mega allir hafa skoðun á því
Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við ætluðum okkur að vinna þennan leik og við eigum að vinna leiki á heimavelli... en við töpum ekki og það er jákvætt," sagði Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Íslands, eftir 1-1 jafntefli gegn Albaníu.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  1 Albanía

„Þetta var leikur tveggja hálfleika. Við vorum kraftlausir í fyrri hálfleik, en við lögum það í seinni hálfleik."

„Það er gott að við náum að jafna svona fljótt, en það hefði verið skemmtilegt að ná inn sigurmarki. Jafntefli er samt betra en að tapa," sagði markvörðurinn.

Það var talað um það að Rúnar hefði átt að gera betur í markinu Albaníu.

„Það mega allir hafa skoðun á því. Ég er ekki búinn að sjá markið aftur. Þetta er af stuttu færi og ég vil bara verja fyrsta skotið. Hvort að ég get slegið hann lengra í burtu eða staðið og sparkað honum í burtu, ég hef ekki séð þetta aftur. Mín hugsun var bara að verja skotið... ég ætlaði bara að reyna að koma boltanum frá. Við sem lið þurfum líka að gera betur, þeir komast alltof auðveldlega inn í teiginn og í opið skot."

Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner