Fylkir 1 - 3 Þróttur R.
0-1 Sigurður Egill Lárusson ('24 )
0-2 Sigurður Egill Lárusson ('56 )
0-3 Magnús Þórðarson ('70 )
1-3 Theodór Ingi Óskarsson ('72 )
Lestu um leikinn
0-1 Sigurður Egill Lárusson ('24 )
0-2 Sigurður Egill Lárusson ('56 )
0-3 Magnús Þórðarson ('70 )
1-3 Theodór Ingi Óskarsson ('72 )
Lestu um leikinn
Það var toppslagur í Lengjudeildinni í dag þar sem toppsætið var í boði. Fylkir fékk Þrótt í heimsókn í Árbæinn. Þróttur var með 13 stig í 4. sæti en Fylkir í 2. sæti með 15 stig fyrir leikinn.
Sigurður Egill Lárusson kom Þrótti yfir þegar hann skoraði með góðu skoti, stöngin inn. Hann bætti síðan öðru markinu við eftir um tíu mínútna leik í seinni hálfleik.
Þegar tuttugu mínútur voru eftir átti Sigurður Egill skot úr aukaspyrnu í varnarvegginn, Kári Kristjánsson fylgdi á eftir og Ólafur Kristófer Helgason varði fyrir fætur Magnúsar Þórðarsonar sem skoraði af stuttu færi.
Þetta var orðin ansi brött brekka fyrir Fylkismenn en Theodór Ingi Óskarsson minnkaði muninn fyrir fylki eftir sendingu frá Kára Sigfússyni.
Baldur Hannes Stefánsson var nálægt því að innsigla sigur Þróttar en átti skot í slá. Það kom ekki að sök því Þróttur fór með sigur af hólmi.
Þróttur tyllir sér á toppinn með 16 stig, stigi á undan Fylki sem er í 4. sæti.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Afturelding | 8 | 5 | 1 | 2 | 23 - 15 | +8 | 16 |
| 2. Fylkir | 7 | 5 | 0 | 2 | 12 - 8 | +4 | 15 |
| 3. HK | 8 | 5 | 0 | 3 | 16 - 14 | +2 | 15 |
| 4. Þróttur R. | 7 | 4 | 1 | 2 | 16 - 9 | +7 | 13 |
| 5. Leiknir R. | 8 | 3 | 3 | 2 | 11 - 10 | +1 | 12 |
| 6. Grótta | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 15 | -1 | 12 |
| 7. Njarðvík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 7 | +4 | 11 |
| 8. Vestri | 7 | 3 | 1 | 3 | 11 - 15 | -4 | 10 |
| 9. Grindavík | 7 | 1 | 4 | 2 | 7 - 9 | -2 | 7 |
| 10. Ægir | 8 | 2 | 1 | 5 | 9 - 14 | -5 | 7 |
| 11. ÍR | 8 | 2 | 1 | 5 | 16 - 22 | -6 | 7 |
| 12. Völsungur | 7 | 0 | 2 | 5 | 4 - 12 | -8 | 2 |


