PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
banner
   lau 06. júní 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ouédraogo tekur sæti Karl í þýska hópnum
Assan Ouédraogo (til hægri) kemur inn.
Assan Ouédraogo (til hægri) kemur inn.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lennart Karl mun ekki vera með Þýskalandi á heimsmeistaramótinu eftir að hann varð fyrir meiðslum á æfingu í gær.

   05.06.2026 19:00
Lennart Karl gæti misst af HM


Þjóðverjum vantaði því einn leikmann til að fullkomna hópinn fyrir lokamótið og hefur Assan Ouédraogo orðið fyrir valinu.

Ouédraogo er tvítugur og leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður. Hann getur einnig spilað sem sóknartengiliður og úti á vinstri kanti.

Ouédraogo kom að 8 mörkum í 20 leikjum með RB Leipzig á nýliðnu tímabili og hefur skorað eitt mark í einum A-landsleik fyrir Þýskaland eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur upp yngri landsliðin.

„Ég finn ótrúlega til með Lenny. Þetta er mikið áfall fyrir hann að missa af HM. Það er smá huggun að hann er ungur og á mörg stórmót framundan," segir Julian Nagelsmann landsliðsþjálfari Þýskalands.

„Inn fyrir hann kemur Assan Ouedraogo sem er einnig mjög hæfileikaríkur og við búumst við því að hann komi inn með hugrekki og frjálsræði."

   21.05.2026 15:21
Neuer verður aðalmarkvörður Þýskalands á HM


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner