Fylkir tók á móti Þrótti í 8. umferð Lengjudeildar karla, leiknum lauk með 1-3 sigri Þróttar. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Sigurð Egil Lárusson, leikmann Þróttar, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 3 Þróttur R.
„Mér fannst þetta frábær frammistaða hjá okkur hér í dag. Við fengum fullt af færum og hefðum hæglega átt að skora fleiri mörk. Mér fannst við getað verið komnir í þægilegri stöðu í hálfleik. Það er alltaf óþægilegt þegar staðan er bara 1-0. Við töluðum um það í hálfleik að við ætluðum bara að halda áfram og mér fannst við gera það og síðan var mjög þægilegt að komast í 0-2 og síðan 0-3.''
Sigurður skoraði tvö mörk í dag og heldur áfram að spila vel í treyju Þróttar og virðist njóta sín í botn í Laugardalnum.
„Ég elska að vera hérna, mér líður ótrúlega vel og er í geggjuðu liði. Ég held að menn átti sig ekki á því að það vantar sex eða sjö byrjunarliðsmenn í dag og svo koma bara fullt af ungum strákum sem eru að spila og þeir eru bara geggjaðir. Það er gaman að vera í Laugardalnum í dag.''
Með sigrinum eru Þróttarar komnir á toppinn í Lengjudeildinni.
„Það er mjög góð tilfinning að vera komnir á toppinn, það var markmiðið að enda í fyrsta sætinu, kom smá hökt fyrir tveimur leikjum en svo eigum við fullt af mönnum inni líka þannig að ég er virkilega bjartsýnn fyrir framhaldinu.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
























