Fotbolti.net
06.07.13 - 18:44
Elvar Geir Magnússon

Bjössi Hreiðars: Vorum komnir í bullandi skít

Auglýsing
Sigurbjörn Hreiðarsson, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka var ekki orðlaus eftir leikinn gegn Haukum, enda ekki honum líkt. Hann var að sjálfsögðu sáttur við sigur sinna manna.
,,Þessi leikur var með þeim ótrúlegri, við erum 1-0 yfir og manni fleiri þegar við komum inn í leikhlé og maður hugsaði að þetta ætti nú að ganga upp í dag. En svo allt í einu erum við orðnir 1-3 undir og við komnir í bullandi skít. En komum svo heldur betur til baka og klárum leikjum með þremur mörkum,\" sagði Bjössi.

Nánar er rætt við Bjössa hér í sjónvarpinu að ofan en þar meðal annars lýsir hann því glottandi á svip hversu góð skipting það hafi verið hjá Ólafi Jóhannessyni þjálfara að setja sjálfan sig (Bjössa) inn á.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.