Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 06. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lee Johnson rekinn frá Bristol City (Staðfest)
Bristol City rak knattspyrnustjóra sinn, Lee Johnson, á laugardag eftir 1-0 tap gegn Cardiff.

Aðstoðarþjálfarinn Dean Holden mun stýra liðinu á meðan leitað er að nýjum knattspyrnustjóra.

Bristol City hefur ekki gengið vel eftir að Championship-deildin á Englandi fór aftur af stað eftir Covid-pásuna. Liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð og ekki unnið í síðustu í níu leikjum sínum.

Johnson tók við Bristol City í febrúar 2016 og skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning í fyrra, en félagið mun núna leita að nýjum stjóra í hans stað.

Bristol City er í 12. sæti Championship þegar fimm umferðir eru eftir.
Athugasemdir