Fotbolti.net
09.11.26 - 18:56
Ívan Guðjón Baldursson

Cubarsí er Gulldrengurinn í ár - Haaland og Berta verðlaunaðir

Cubarsí er Gulldrengurinn í ár - Haaland og Berta verðlaunaðir
Canon

Mynd: EPA

Spænski varnarmaðurinn Pau Cubarsí hefur hlotið viðurkenninguna Gulldrengur ársins eftir magnaða frammistöðu með Barcelona og spænska landsliðinu á síðustu leiktíð.
Gulldrengurinn: Úrvalsdeildin með flesta fulltrúa
TENGT EFNI

Gulldrengurinn: Úrvalsdeildin með flesta fulltrúa

Ítalski miðillinn Tuttosport hefur staðið fyrir kosningu á Gulldrengi ársins á hverju ári síðan 2015 og getur hver leikmaður aðeins unnið verðlaunin einu sinni.

Kylian Mbappé, Erling Haaland og Jude Bellingham eru meðal fyrrum sigurvegara en Lamine Yamal vann 2024 og var Désiré Doué valinn Gulldrengur ársins í fyrra.

50 fréttamenn greiddu atkvæði í ár og stóð Cubarsí uppi sem sigurvegari, eins og búist var við.

Fleiri verðlaun voru veitt á verðlaunahátíð Gulldrengsins. Erling Haaland var valinn sem fótboltamaður ársins og fékk táningurinn efnilegi Honest Ahanor sérstök verðlaun fyrir að vera ítalski Gulldrengur ársins.

Joan Laporta, forseti Barcelona, var heiðraður sem forseti ársins og ofurumboðsmaðurinn Jorge Mendes sem umboðsmaður ársins.

Andrea Berta hjá Arsenal var að lokum kjörinn sem besti stjórnandi ársins.
Cubarsí er Gulldrengurinn í ár - Haaland og Berta verðlaunaðir
Canon

Mynd: EPA

Cubarsí er Gulldrengurinn í ár - Haaland og Berta verðlaunaðir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.