Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. júlí 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Mandzukic farinn frá Al-Duhail
Mynd: Getty Images
Króatíski framherjinn Mario Mandzukic hefur yfirgefið herbúðir Al-Duhail í Katar eftir sex mánaða dvöl þar.

Mandzukic samdi við Al-Duhail í desember eftir að hafa verið kominn út í kuldann hjá Juventus.

Mandzukic tilkynnti hins vegar á Twitter í gær að hann hafi náð samkomulagi um starfslok hjá Al-Duhail.

Tyrknesku félögin Galatasaray og Fenerbahce hafa strax sýnt Mandzukic áhuga sem og AC Milan og Benevento á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner