Rodri stráði salti í sár fyrrum liðsfélaga síns - „Biðst innilegrar afsökunar“

Rodri fagnar í andlitið á Bernardo

Mynd: EPA

Rodri fagnar í andlitið á Bernardo

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Rodri hefur beðið fyrrum samherja sinn hjá Manchester City, Bernardo Silva, afsökunar á framferði sínu undir lok leiks í sigri Spánar á Portúgal á HM í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Merino skaut Evrópumeisturunum áfram - Síðasti dansinn hjá Ronaldo
Rodri og Bernardo Silva unnu marga titla saman hjá Manchester City áður en sá síðarnefndi kvaddi félagið í lok tímabils.
Í landsleikjum er vinskapurinn lagður til hliðar og fóru hlutirnir aðeins úr böndunum í kvöld.
Undir lok leiks Portúgals og Spánar fékk Bernardo gott færi til að jafna metin, en stangaði boltann yfir markið. Rodri fagnaði klúðrinu innilega beint fyrir framan sinn gamla liðsfélaga, sem var allt annað en sáttur.
Rodri hefur nú beðist afsökunar á framferði sínu.
„Ég vil biðja Bernardo Silva innilegrar afsökunar á því að hafa fagnað þegar hann klúðraði færinu undir lokin. Þetta skrifast alfarið á mig,“ sagði Rodri eftir leikinn.

Bernardo Silva and Rodri going through a divorce ???? pic.twitter.com/svqYqIDqet
— moe (@omxrszn) July 6, 2026