Þingkona í Paragvæ með rasísk ummæli í garð Mbappe - „Þykist vera franskur og harður“

Kylian Mbappe

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Kylian Mbappe

Mynd: EPA
Marina Ferrari, íþróttamálaráðherra Frakklands, hefur gagnrýnt paragvæsku þingkonuna Celeste Amarilla harðlega og fordæmt rasísk ummæli hennar um franska landsliðsfyrirliðann Kylian Mbappe.
Frakkar unnu Paragvæa í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á dögunum.
Mikil spenna var í leiknum og Paragvæar mættu fastir til leiks. Það var greinilegt að þeir ætluðu sér að gera allt sem þeir gátu til að senda Frakka heim.
Celeste Amarilla, þingkona í Paragvæ, lét síðan rasísk og ófyrirgefanleg ummæli falla í garð Mbappe eftir leikinn.
„Þessi hálfviti lærði ekki einu sinni að skrifa og í stað þess að fá brjóstamjólk saug hann safann úr kókoshnetum. Það menntaðasta sem hann hefur heyrt voru simpansar. Orlando Gill (markvörður Paragvæ), þú hefðir átt að gefa honum puttann. Ég geri það á þingi og það hefur engar afleiðingar.“
„Nýlenduvæddur Kamerúni að þykjast vera harður og franskur. Hann er bitur, nýríkur, hrokafullur og ljótur. Hann var stressaður og hræddur allan leikinn, rétt eins og allt liðið hans. Þeir gátu ekki skorað eitt mark og unnu með minnsta mun,“ skrifaði hún á X.
Ferrari fordæmdi ummæli Amarilla harðlega og segir þau óásættanleg í alla staði.
„Ég er brjáluð yfir ummælum paragvæsku þingkonunnar Celeste Amarilla. Frakkland fordæmir þetta kynþáttaníð í garð Kylian Mbappe af fullri hörku.“
„Þessar yfirlýsingar eru viðbjóðslegar, skammarlegar og umfram allt óásættanlegar, ekki síst vegna þess að þær koma frá pólitískum leiðtoga.“
„Við munum ekki þegja þegar kemur að kynþáttafordómum. Með því að ráðast á Kylian Mbappe er þingkonan að ráðast á allt það sem fyrirliði okkar stendur fyrir og það sem þjóðin stendur fyrir: frelsi, jafnrétti og bræðralag,“ sagði Ferrari.