Besta deildin: Keflavík og Fram skildu jöfn

Stefan Ljubicic náði í stig fyrir Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík 1 - 1 Fram
0-1 Kennie Knak Chopart ('54 )
1-1 Stefan Alexander Ljubicic ('68 )
Lestu um leikinn
0-1 Kennie Knak Chopart ('54 )
1-1 Stefan Alexander Ljubicic ('68 )
Lestu um leikinn
Keflavík og Fram gerðu 1-1 jafntefli í 13. umferð Bestu deildar karla á HS Orku-vellinum í kvöld.
Alpha Conteh fékk dauðafæri til að koma heimamönnum yfir á 28. mínútu. Viktor Freyr Sigurðsson, markvörður Fram, fór í skógarhlaup og Conteh komst framhjá honum. Nokkrir Framarar náðu að koma sér á línuna, en Conteh setti boltann framhjá markinu.
Framarar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik, en Keflavík fékk hættulegasta færið.
Snemma í síðari hálfleik komust gestirnir yfir. Fred Saraiva tók aukaspyrnu inn á teiginn á Kennie Chopart, sem var dauðafrír, lyfti boltanum yfir Ásgeir Orra Magnússon og í netið.
Heimamenn jöfnuðu metin fjórtán mínútum síðar. Eiður Orri Ragnarsson átti þá laglega fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Stefan Ljubicic var mættur og stangaði boltann í gagnstætt horn.
Hvorugu liðinu tókst að finna sigurmarkið eftir það og liðin sættust á að skipta stigunum. Fram er í 3. sæti með 27 stig en Keflavík í 6. sæti með 16 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 12 | +7 | 26 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 7 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 8 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |