Mbappe svaraði þingkonunni fullum hálsi - Fær hrós frá forsetanum

Mynd: EPA

Emmanuel Macron og Kylian Mbappe

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kylian Mbappe, fyrirliði Frakklands, hefur svarað paragvæsku þingkonunni Celeste Amarilla fullum hálsi og segir hana hafa sett svartan blett á annars hetjulega baráttu paragvæska landsliðsins á heimsmeistaramótinu.

TENGT EFNI
Þingkona í Paragvæ með rasísk ummæli í garð Mbappe - „Þykist vera franskur og harður“
Amarilla sagði eftir sigur Frakklands á Paragvæ að Mbappe væri ekki Frakki heldur nýlenduvæddur Kamerúni sem kynni ekki að skrifa.
Hún sagði einnig að það menntaðasta sem hann hefði heyrt væri frá simpönsum.
Þingkonan kallaði Mbappe jafnframt hrokafullan og ljótan, en Mbappe hefur nú svarað henni fullum hálsi.
„Frú Celeste Amarilla,
Þú ert viðbjóðsleg kona og átt ekki skilið að gegna embætti þínu. Þú ert ekki fulltrúi Paragvæ, þjóðar sem sýndi ástríðu og heiður í gegnum alla keppnina.
Með ábyrgðarleysi þínu og blygðunarlausum rasisma hefur þú orðið til þess að heimurinn hefur gleymt vegferðinni og sögulegu framlagi leikmanna Paragvæ á þessu heimsmeistaramóti. Í staðinn situr eftir vanhæf kona sem dregur upp verstu mögulegu mynd af landi sínu.
Ég mun aldrei leyfa fólki eins og þér að fá frelsi til að spúa hatri og rasisma um allan heim,“ sagði Mbappe.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur hrósað Mbappe fyrir svarið og sagði þetta enn eitt markið á ferli hans.
„Enn eitt markið hjá Kylian Mbappe og í þetta sinn gegn rasisma. Hann fær allan minn stuðning. Þegar orð smána, svara gildi okkar: reisn, virðing og bræðralag,“ sagði Macron.

Un but de plus pour Kylian Mbappé. Contre le racisme cette fois. Tout mon soutien. Quand les mots salissent, nos valeurs répondent : dignité, respect, fraternité. @KMbappe ????
— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) July 6, 2026

Emmanuel Macron og Kylian Mbappe

Mynd: EPA