Ronaldo á EM 2028? - „Ég vakna með hreina samvisku“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo vildi ekki staðfesta það hvort hann hafi spilað sinn síðasta landsleik með portúgalska landsliðinu í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Merino skaut Evrópumeisturunum áfram - Síðasti dansinn hjá Ronaldo
Ronaldo lauk sínu sjötta heimsmeistaramóti þegar Portúgal tapaði 1-0 fyrir Spáni í 16-liða úrslitum mótsins.
Hann skoraði þrjú mörk á mótinu, sem hafði áður gefið til kynna að þetta yrði hans síðasta heimsmeistaramót. Það kemur ekki á óvart, enda verður Ronaldo 45 ára þegar næsta mót fer fram.
„Við spiluðum vel. Við hefðum getað gert betur en Spánn er með bestu þjóðum heims. Þeir munu komast í úrslit, eða nálægt þeim leik.
„Ég er leiður yfir því að við séum úr leik á þennan hátt, en ég gaf allt mitt. Ég yfirgef mótið með hreina samvisku. Stundum vinnur maður og stundum tapar maður.“
„Þetta var síðasta heimsmeistaramótið mitt, en núna fæ ég tíma til að hugsa, vera með fjölskyldunni og svo heldur lífið áfram. Ég mun vakna á morgun með það sama í huga og í dag, að ég gerði mitt allra besta.“
„Ég vann þrjá titla með Portúgal, en áður en ég kom hafði þjóðin ekki unnið neinn. Ég get ekki verið annað en glaður með það og set ég Evrópumótið í sama flokk og HM,“ sagði Ronaldo.“
Það hljómaði eins og hann hafi verið að kveðja landsliðið, en þegar hann var spurður hvort hann væri hættur þá gat hann ekki staðfest það.
„Ég tek ekki hvatvísar ákvarðanir. Í augnablikinu er ekki mikilvægt hvort ég haldi áfram eða ekki,“ sagði Ronaldo.
Roberto Martínez er hættur með Portúgal og er Jorge Jesus, fyrrum þjálfari Ronaldo hjá Al Nassr að taka við. Þeir urðu deildarmeistarar saman á síðustu leiktíð í Sádi-Arabíu, en það er aldrei að vita hvort Ronaldo taki hinn raunverulega síðasta dans á EM 2028.
Eitt er þó víst: Ronaldo mun spila annað tímabil með Al Nassr og er samningsbundinn félaginu til ársins 2027.
Hann hefur alltaf sagt að svo lengi sem honum líði vel líkamlega muni hann halda áfram að spila. Því er ekki hægt að útiloka að hann haldi áfram með landsliðinu, þó síðasta heimsmeistaramótinu hans sé nú lokið.