Byrjunarlið Bandaríkjanna og Belgíu: Balogun byrjar

Folarin Balogun er í byrjunarliðinu

Mynd: EPA

Folarin Balogun er í byrjunarliðinu

Mynd: EPA
Folarin Balogun er í byrjunarliði Bandaríkjanna sem mætir Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á Lumen-leikvanginum í Seattle í Washington-ríki á miðnætti.
Balogun átti upphaflega að vera í leikbanni eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn Bosníu í 32-liða úrslitum, en eitt símtal frá Donald Trump Bandaríkjaforseta breytti því.
Framherjinn, sem hefur verið heitur á mótinu, er á sínum stað í byrjunarliðinu. Lið Mauricio Pochettino er því óbreytt frá sigrinum á Bosníu.
Kevin De Bruyne og Jeremy Doku eru báðir á bekknum hjá Belgíu ásamt Hans Vanaken og Arthur Theate. Nathan Ngoy kemur úr leikbanni og þá koma Amadou Onana, Dodi Lukebakio og Nicolas Raskin einnig inn.
Bandaríkin: Freese; Freeman, Richards, Ream; Dest, Adams, Tillman, McKennie, Robinson; Pulisic, Balogun.
Belgía: Courtois; Castagne, Mechele, Ngoy, De Cuyper; Raskin, Tielemans; De Ketelaere, Onana, Trossard; Lukebakio.