Fotbolti.net
06.07.26 - 18:13
Brynjar Ingi Erluson

James líklega klár fyrir leikinn gegn Norðmönnum

James líklega klár fyrir leikinn gegn Norðmönnum
Canon

Mynd: EPA

Hægri bakvörðurinn Reece James verður líklega klár í slaginn með Englendingum gegn Noregi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins en þetta kemur fram á BBC.
Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, hefur verið í miklum vandræðum með hægri bakvarðarstöðuna á mótinu.

James meiddist í öðrum leik riðlakeppninnar gegn Gana og hefur misst af síðustu þremur leikjum.

Alls hafa sex leikmenn leyst stöðuna á mótinu, en vandræðin jukust enn frekar fyrir Englendinga þegar Jarell Quansah fékk rauða spjaldið í 3-2 sigrinum á Mexíkó í nótt.

Englendingar binda þó miklar vonir við að James verði klár í slaginn fyrir leikinn gegn Noregi. Hann mun byrja að æfa af fullum krafti í þessari viku.

Eftir að Quansah var rekinn af velli gegn Mexíkó var miðvörðurinn Ezri Konsa færður í hægri bakvörðinn.

Konsa og Djed Spence eru áfram möguleikar fyrir Tuchel í stöðuna, en endurkoma James yrði kærkomin fyrir enska landsliðið enda er hann fyrsti kostur Tuchel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.