06.08.26 - 13:05
Elvar Geir Magnússon
Ánægður með reiðina í klefanum

Mikel Arteta segir að það hafi soðið á leikmönnum.

Mynd: EPA

Það sauð á leikmönnum Arsenal eftir dapra frammistöðu í 1-3 tapi gegn Real Betis í æfingaleik í Dublin. Þetta segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Varnarleikur Englandsmeistara Arsenal var óvenju dapur og liðið fékk á sig þrjú mörk í fyrri hálfleiknum. Eftir leikinn, sem fram fór í gær, var Arteta spurður út í það hvernig andinn væri í klefanum?

TENGT EFNI
Arsenal fékk á sig þrjú í fyrri hálfleik - PSG tapaði fyrir Mallorca
„Menn eru miður sín eftir það hvernig þeir fengu að kenna á því. Það sýður á mönnum og ég er ánægður með það. Þetta eru viðbrögðin sem við þurfum," sagði Arteta.
Arsenal var án Declan Rice, Eberechi Eze, Noni Madueke, Bukayo Saka, Mikel Merino, David Raya og Martin Zubimendi sem fengu lengra frí eftir HM. Martin Ödegaard er þá á einstaklingsæfingum eftir að hafa spilað með Noregi á mótinu.