Byrjunarlið Vals gegn Nordsjælland: Brazell með þrjár breytingar eftir tapið gegn Stjörnunni
Fyrrum leikmaður Fjölnis er fyrirliði gestana


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði tvö gegn Mostar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel á bekk Nordsjælland.

Mynd: FC Nordsjælland


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 18:30 hefst fyrsti leikur Vals og Nordsjælland í Forkeppni Sambandsdeildarinnar. Seinni leikurinn er spilaður í Danmörku. Leikurinn er spilaður á heimavelli Vals, Hlíðarenda. Byrjunarliðin eru mætt í hús og eru hér fyrir neðan.
Chris Brazell gerir 3 breytingar eftir 2-3 tap gegn Stjörnunni á heimavelli síðasta sunnudag. Shkelzen Veseli, Jakob Franz og Ingimar Stöle fara allir á bekkinn. Í staðinn fyrir þá byrja þeir Myles Veldman, Albin Skoglund og Birkir Heimisson.
Fyrrum leikmaður Fjölnis frá árinu 2016, hann Tobias Salquist byrjar fyrir Nordsjælland og er fyrirliði þeirra.
Prince Amoako Junior sem er ungstirni vikunnar hjá Fotbolta.net er á bekknum. Prince er einn af mest spennandi ungum leikmönnum í Skandinavíu. Á bekk Nordsjælland er einnig unglingalandsliðsmaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson.

Ungstirni vikunnar - Mun reynast Valsmönnum erfiður
Byrjunarlið Valur
Frederik August Albrecht Schram, Markus Lund Nakkim, Jónatan Ingi Jónsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Albin Skoglund, Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Lúkas Logi Heimisson, Dagur Orri Garðarsson, Birkir Heimisson, Myles A Veldman, Samúel Kári Friðjónsson
Byrjunarlið Nordsjælland
Andreas Hansen, Peter Ankersen, Tobias Salquist, Ibrahim Adel, Stephen Acquah, Justin Janssen, Runar Norheim, Juho Lähteenmäki, Villum Berthelsen, Hjalte Boe, Malte Heyde

Skoraði tvö gegn Mostar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel á bekk Nordsjælland.

Mynd: FC Nordsjælland
