Fotbolti.net
06.08.26 - 21:57
Sverrir Örn Einarsson

Davíð Örvar: Hann skorar bara fyrir utan teig

Auglýsing
Davíð Örvar

Davíð Örvar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Lið ÍR í Breiðholti vann sannkallaðann seiglu sigur á lið Ægis frá Þorlákshöfn í Breiðholti í kvöld þegar liðið bar 3-2 sigurorð af gestum sínum á Þarfaþings vellinum í Breiðholti fyrr í kvöld. Davíð Örvar Ólafsson aðstoðarþjálfari liðsins var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum.
Lestu um leikinn: ÍR 3 - 2 Ægir
„Við erum mjög ánægðir með að hafa unnið leikinn fyrst og fremst. Það var markimiðið en við gerðum þetta óþarflega spennandi eins og flest alla leiki sem við vinnum.“

Heimamenn í ÍR höfðu frumkvæðið í leiknum en fengu þó á sig tvö mörk og héldu spennu í leiknum. Nokkuð sem þjálfarateymið er ósátt með eða hvað?

„Þetta voru fín mörk hjá þeim og markið hjá Williard frábært skot en við hefðum kannski getað blokkað eða allavega farið aðeins nær honum en seinna markið gerði hann ágætlega en maður er alltaf fúll að fá á sig mark.“

Emil Nói Sigurhjartarson skoraði glæsilegt mark fyrir heimamenn í leiknum en hann ku vera ítið fyrir annað en að skora falleg mörk.

„Hann er frábær skotmaður en við eigum ekki að gefa á hann ef hann er í færi inn í teig. Hann skorar bara fyrir utan teig en er reyndar búinn að skora úr tveimur vítum. Hann er að koma sterkur inn núna, skoraði á móti Fylki og skoraði aftur í kvöld og það er bara það sem hann á að gera. “

Sagði Davíð Örvar en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Emil Nói.

Emil Nói.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.