Fotbolti.net
06.08.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eiður Orri svekktur: Finnst mjög ósanngjarnt að fá leikbann fyrir svona

Eiður Orri verður ekki með Keflavík í næsta leik.

Eiður Orri verður ekki með Keflavík í næsta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri Ragnarsson, leikmaður Keflavíkur, fékk tvö gul spjöld og þar með rautt þegar KA kom í heimsókn í gær. Rauða spjaldið fékk hann á 62. mínútu. Staðan var þá 3-0 fyrir Keflvíkingum og urðu það lokatölur í leiknum.

Fyrra spjaldið fékk hann fyrir að stöðva mögulega skyndisókn KA í fyrri hálfleik og seinna gula spjaldið fékk hann fyrir meintan leikaraskap.

„Eiður er með boltann á hægri kantinum og á ágætis sprett, klobbar Birgi Baldvinsson og reynir að fara framhjá Andre Rømer en fellur við. Twana metur það sem svo að Eiður hafi látið sig falla og gefur honum seinna gula spjaldið og þar með rautt. Það var klárlega snerting þarna á milli svo að gult fyrir leikaraskap finnst mér ansi harður dómur," skrifaði Gylfi Már Þórðarson sem textalýsti leiknum.

Fótbolti.net ræddi stuttlega við Eið Orra um rauða spjaldið.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 0 KA
„Ég er fyrst og fremst bara ógeðslega svekktur. Ég er kominn á ferðina þannig það þarf ekki mikið til að taka mann úr jafnvægi. Ég ætlaði ekki að láta mig detta og það er snerting. Ég stend strax upp aftur, bið ekki um neitt og ætla halda áfram og er kominn í góða stöðu," segir Eiður Orri.

„Mér finnst mjög ósanngjarnt að vera settur í leikbann fyrir svona," bætir hann við.

Hann missir af leik Keflavíkur við Stjörnuna á sunnudag. Miðvörðurinn Marin Brigic verður einnig í banni gegn Stjörnunni vegna uppsafnaðra spjalda.

„Það var ekkert að gerast þegar að Eiður Orri fær seinna gula spjaldið og þetta verður smá "scrappy". Ég veit ekki hvort það sé gult spjald eða ekki, Eiður segir ekki, ekki skil ég af hverju hann ætti að henda sér niður úti á kanti kominn framhjá manninum sínum og stendur strax upp. Mér fannst hallað á okkur í dómgæslunni í dag, við fáum gul spjöld strax í kjölfarið af þessu atviki og ég skil ekki línuna hjá honum í seinni hálfleik," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir leikinn í gær.
Ég ætlaði ekki að láta mig detta og það er snerting

Ég ætlaði ekki að láta mig detta og það er snerting

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Twana gaf Eiði Orra tvö gul spjöld í gær og þar með rautt.

Twana gaf Eiði Orra tvö gul spjöld í gær og þar með rautt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.