Fotbolti.net
06.08.26 - 22:20
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

„Fyrsta skipti sem ég spila með VAR og núna er ég farinn að kvarta yfir því."

Auglýsing
„Fyrsta skipti sem ég spila með VAR og núna er ég farinn að kvarta yfir því."
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er mjög stoltur af frammistöðunni hjá strákunum í dag" sagði Chris Brazell, þjálfari Vals eftir 0- 2 tap gegn Nordsjælland í forkeppni Sambandsdeildarinnar á heimavelli.

Lestu um leikinn: Valur 0 - 2 Nordsjælland

„Allir sem horfðu á leikinn geta sagt að frammistaðan okkar hafi verið mjög sterk á móti mjög erfiðum andstæðingi. Á evrópskum skala og hvað þeir (Nordsjælland) sé uað gera, þeir eru mjög góðir. Þannig að ég held að það segi mikið um gæði leikmannanna að við getum verið í jöfnum slag við þá á köflum og lagt svona mikla vinnu í leikinn eftir erfitt tímabil hingað til. Svo auðvitað vonbrigði á vellinum, ég held að það séu góðir punktar sem hægt er að taka úr leiknum og þetta er eitthvað sem við getum byggt á fyrir restina af tímabilinu."

Valur fékk nokkur færi í dag.

„Ég held að þetta segi mikið um frammistöðuna hjá strákunum í dag. Þegar þú ert búin með leik á móti liði eins og Nordsjælland og þú ert svekktur með það að tapa tvö núll, ég held að það segi mikið um frammistöðu okkar í dag. Verum hreinskilnir, vanalega þegar þú spilar á móti liði eins og Nordsjælland, þá ertu ánægður með það að ef þú nærð að gefa allt í leikinn og rétt nærð að lifa af. Strákarnir í klefanum eru vonsviknir að við fengum víti á okkur sem ég held að hafi verið harður dómur og að við tókum ekki færin sem við fengum. Miðað við Mostar leikinn fengum við mun fleiri færi í dag og leyfðum þeim að fá færri stöður."

Hvað fannst Brazell um vítið sem Nordsjælland fékk?

„Aftur, ég get aðeins séð frá mínu sjónarhorni. Mér fannst dómurinn vera harður, Þetta er í fyrsta skipti sem ég spila með VAR og núna er ég farinn að kvarta yfir því. týpískur fótboltaþjálfari. Mér fannst dómurinn vera harður, mér fannst hann snerta boltann fyrst, kannski er seinni snertingin við leikmanninn. Kannski eru þið með betra sjónarhorn og ég fer heim og fatta að þetta var víti."

„Við töluðum fyrir leik að við þurftum að passa okkur að við myndum ekki tapa leiknum yfir eitthverju sem við gætum stjórnað. Vinnan, grunnatriðin, hvernig við stilltum okkur upp, hvernig við unnum saman sem lið. Allir sem horfðu á leikinn geta verið sammála um að það að við töpuðum ekki á eitthverju sem við gátum stjórnað. Þeir voru ekki heppnir en þeir skora frábær mörk og þeir fá víti. Hrós til Nordsjælland, þeir eru mjög góðir en hrós til strákana, mér fannst frammistaða þeirra vera góð."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.