„Hún er bara besti leikmaðurinn í þessari deild“

Jóhann Kristinn var svekktur að Þróttur hefði ekki náð í öll þrjú stigin gegn Stjörnunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn var svekktur að Þróttur hefði ekki náð í öll þrjú stigin gegn Stjörnunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna á Samsungvellinum í kvöld í 15. umferð Bestu deildarinnar. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var svekktur með að liðið hefði ekki farið heim með öll þrjú stigin.
„Ég er bara hundóánægður með að deila stigunum eftir þennan leik. Við fórum kannski ekki nógu vel með stöður og færi á síðasta þriðjungi og þegar þú gerir það ekki, nærð bara í eitt mark og færð mark á þig, þá færðu það sem þú átt skilið.“
„Mér fannst við vera betri í þessum leik og mér finnst þetta gott skref í rétta átt fyrir mitt lið. Þess vegna er ég bara vonsvikinn og finn til með stelpunum að hafa ekki náð í öll þrjú stigin.“
Þróttur byrjaði leikinn af krafti og skapaði sér meira en liðið hefur gert í síðustu leikjum. Jóhann segir þó erfitt að sætta sig við aðeins eitt stig.
„Þetta var skref í rétta átt en það er rosalega erfitt að sætta sig við það að spila góðan leik, vera að fara í rétta átt, skapa sér meira heldur en við höfum verið að gera og fara ekki betur með það en þetta.“
„Þegar sólin rís á ný þá verðum við náttúrulega bara að líta svo á að við höfum tekið gott skref og byggja ofan á þetta. Eitt stig hjálpar okkur allt of lítið en það er betra en ekki neitt.“
Katie Cousins var virkilega öflug í kvöld og Jóhann fór fögrum orðum um bandaríska miðjumanninn, sem er komin aftur í Þrótt.
„Katie er náttúrulega bara frábær leikmaður. Ég held að hún sé nú bara besti leikmaðurinn í þessari deild, nei ég held ekkert, hún er það bara.“
„Mér finnst hún gefa okkur aðeins meiri trú á það sem við erum að gera og aðrir leikmenn stíga aðeins upp. Hún tengir mjög vel við strikerinn okkar og þá hleypir það köntunum okkar meira inn í leikinn.“
„Katie gerir alla leikmenn í kringum sig betri og þegar hún verður komin á fullt þá er ekki spurning að hún tekur algjörlega yfir. Það er bara þannig.“
Þróttur er komið í úrslit bikarsins en Jóhann segir liðið ekki vera að hugsa um það verkefni að svo stöddu. Nú sé öll áhersla á deildina.
„Við getum ekki hugsað um neitt annað núna en að krafla okkur upp úr þeirri holu sem við vorum búnar að koma okkur í í deildinni. Það er bara verkefni hvers dags og við verðum bara að einbeita okkur að því. Hitt kemur bara þegar það kemur.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
