Fotbolti.net
06.08.26 - 22:09
Sverrir Örn Einarsson

Nenad: Líkt og leikmenn bæru einhvern ótta

Auglýsing
Nenad

Nenad

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lengjudeildin
Ægismenn máttu þola 3-2 tap gegn ÍR á útivelli er liðin mættust í Breiðholti fyrr í kvöld. Nenad Zivanovic þjálfari Ægis var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum og hafði um leikinn að segja.
Lestu um leikinn: ÍR 3 - 2 Ægir
„Leikurinn sem slíkur var ekki alslæmur en við vorum í basli við að ráða við pressu þeirra og að vinna þessa 50-50 bolta sem við vorum ekki að vinna. Að sama skapi voru færslurnar okkar ekki þær bestu sem hefur verið svolítið saga okkar til þessa í sumar en þrátt fyrir það tekst okkur að skora tvö mörk hér í kvöld. “

Lið Ægis var þó sérstaklega í basli í fyrri hálfleik leiksins. Nokkuð sem þjálfarinn hefur verið óánægður með.

„Leikmenn mínir hófu leikinn stífir, líkt og þeir bæru einhvern ótta með sér sem ég get ekki skilið eða útskýrt. Fótbolti er bara leikur og ég bið bara um að menn geri sitt besta en við vorum eflaust of passívir í okkar nálgun,“

Lið Ægis beit þó í skjaldarrendur í síðari hálfleik og sýndi mun betri leik, Nokkuð sem Nenand hefur glaðst yfir eða hvað?

„Ég er ekkert heillaður, auðvitað er það jákvætt viðhorf þeirra en þegar leikir tapast skiptir það engu.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.