Fotbolti.net
06.08.26 - 22:54
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Þjálfari Nordsjælland hrósar unglingalandsliðsmanni Íslands

Auglýsing
Þjálfari Nordsjælland hrósar unglingalandsliðsmanni Íslands
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er mjög ánægður og mjög feginn" sagði Jens Fønsskov Olsen, þjálfari Nordsjælland eftir leik gegn Val í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Nordsjælland vann leikinn 0-2 á heimavelli Vals en bæði lið eiga eftir seinni leikinn á heimavelli Nordsjælland.

Lestu um leikinn: Valur 0 - 2 Nordsjælland

„Það er alltaf erfitt að spila hérna og að spila gegn Val. Lið með sterkt hugarfar, aga og flottir varnarlega, með Haraldsson (Tryggvi Hrafn) á vinstri kantinum þá er allt hægt. Líka í föstum leikatriðum, sem við sáum í lok leiksins. Ég er mjög ánægður með sigurinn."

„Við sáum að Valur voru mjög sterkir varnarlega, við spiluðum gegn 11 leikmönnum sem voru allir á um 30 metra svæði. Það er erfitt að brjóta það niður, þetta voru góð einstaklingsgæði sem gaf okkur fyrsta markið. Ég held að við vorum með að minnsta kosti þrjú dauðafæri sem við hefðum getað skorað úr, en svo var það víti líka."

Unglingalandsliðsmaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson var á bekknum í dag hjá Nordsjælland.

„Hann er frábær leikmaður, mér finnst gaman að vinna með honum. Hann er með gott hugarfar, góður leikmaður, hreyfir sig vel og nær vel yfir stór svæði. Hann gerir miklar kröfur til sjálfs sín, mér finnst mjög gaman að vinna með honum.“

„Hann getur farið mjög langt, ef hann tekur réttu skrefin þá getur hann náð mjög langt. Stundum tekur það lengri tíma, en með hugarfarið hans og seiglu, þá er hann með gott tækifæri til þess að ná langt."

Þjálfari Nordsjælland hrósar unglingalandsliðsmanni Íslands
Canon

Mynd: FC Nordsjælland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.