Fotbolti.net
06.08.26 - 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tólf í banni í Bestu

Gísli var hissa þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft.

Gísli var hissa þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ellefu leikmenn og einn þjálfari í Bestu deildinni munu taka út leikbann í 18. umferð deildarinnar sem spiluð verður á sunnudag og mánudag.

Eins og greint var frá síðasta laugardag komu sex sér í bann í Þjóðhátíðarleiknum og sex til viðbótar bættust svo við í liðinni umferð.

Fjórir fengu rauða spjaldið í liðinni umferð og átta fara í bann út af uppsöfnuðum spjöldum.
Sex í banni eftir Þjóðhátíðarleikinn
TENGT EFNI

Sex í banni eftir Þjóðhátíðarleikinn

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, grýtti brúsa í vegg á Hásteinsvelli og fékk fyrir það rautt spjald. Ægir Jarl Jónasson, Israel Garcia og Sigurjón Rúnarsson fengu gult í leiknum og verða ekki með Fram gegn KR á mánudag.

Bjarki Björn Gunnarsson og Felix Örn Friðriksson verða þá ekki með ÍBV sem heimsækir Víking á sunnudag. Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, fékk rautt spjald gegn ÍA og verður því ekki með gegn ÍBV.

Gísli Eyjólfsson fékk rautt spjald gegn Víkingi og verður því ekki með gegn Þór á sunnudag.

Eiður Orri Ragnarsson fékk tvö gul spjöld og þar með rautt þegar Keflavík tók á móti KA. Hann verður í banni gegn Stjörnunni á sunnudag og Marin Brigic tekur einnig út leikbann í þeim leik vegna uppsafnaðra spjalda.

Grétar Snær Gunnarsson hjá FH og Markús Máni Pétursson hjá KA missa þá af leik liðanna á Akureyri á sunnudag eftir að hafa fengið gult spjald í gær.

18. umferðin í Bestu
sunnudagur 9. ágúst
18:00 ÍA-Þór (ELKEM völlurinn)
18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
18:00 KA-FH (Greifavöllurinn)
18:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)
20:15 Breiðablik-Valur (Eikarvöllurinn)

mánudagur 10. ágúst
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)
Oliver Ekroth var ekki sammála dómnum.

Oliver Ekroth var ekki sammála dómnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson missir af leiknum gegn KR.

Rúnar Kristinsson missir af leiknum gegn KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.