Fotbolti.net
06.08.26 - 21:43
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Tryggvi hreinskilinn: Staðan er sú að við erum í skítamálum

Auglýsing
Tryggvi hreinskilinn: Staðan er sú að við erum í skítamálum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Blendið þannig" sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmaður Vals eftir leik gegn Nordsjælland í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Valur tapaði 0-2 á heimavelli en eiga seinni leikinn úti í Danmörku í næstu viku.

Lestu um leikinn: Valur 0 - 2 Nordsjælland

„Þeir eru sterkari, mikið með boltann, fá fleiri færi í leiknum svona overall. En mér finnst við fá nokkrar góðar stöður sem við getum farið betur með og þannig séð með ólíkindum að við skorum ekki úr horninu þegar Bjarni fær skallann. Óheppni, skallinn bara beint, fast í markmanninn þannig séð. Heilt yfir myndi ég segja sanngjarnt þannig, þetta er náttúrulega hörku lið, frábærlega spilandi og mjög góðir í sínu. Alls ekki sáttur með úrslitin en mér fannst þau vera nokkur sanngjörn."

„Við látum þá hlaupa, halda honum vel og um leið þegar þú reynir að pressa á þá, eiga þeir mjög auðvelt að spila út."

Rétt fyrir fyrsta mark Nordsjælland var Tryggvi mjög nálægt því að skora.

„Það er ógeðslega svekkjandi. Ég var enn þá á okkar sóknarhelming. Ég fæ skyndisókn, kominn í frekar þrönga stöðu á vinstri, skotið var lélegt. Þeir fara upp og hann klínir honum í vinkilinn fyrir utan teig og lítið við því að segja en jú það var extra svekkjandi að vera nýbúinn að klúðra góðu færi áður en þeir skora."

Tryggvi ræddi um seinni leikinn gegn Nordsjælland og stöðuna í deildinni.

„Ég held að við þurfum að fara yfir það í næstu viku. Við eigum leik í deildinni á milli sem við þurfum að fókusa á og getum ekki tekið hausinn af deildinni. Staðan er sú að við erum í skítamálum þar, búnir að tapa fjórum leikjum í röð og erum búnir að vera drulluslakir undanfarið í deildinni. Við erum langt frá því að hugsa um seinni leikinn og með fullan fókus að rífa okkur í gang í deildinni."

„Það eru ýmar ástæður fyrir því, ég get ekki pinpointað nákvæmlega hvað er búið að fara úrskeiðis. Við erum búnir að vera spila illa og tapað mörgum leikjum, safna lítið af stigum og það segir sig sjálft að það sé ekki vænlegt til árangurs. Staðan er sú að við erum í mjög vondri stöðu í deildinni, við þurfum að taka fullan fókus á næsta leik áður en við getum farið að hugsa um hvað við ætlum að gera í næsta leik á móti Nordsjælland."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.