Fotbolti.net
06.08.26 - 11:27
Elvar Geir Magnússon

Veðbankar hafa mjög litla trú á íslensku liðunum

Frá æfingu Víkings í Thun.

Frá æfingu Víkings í Thun.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Víkingur og Valur eiga leiki í Evrópu í kvöld en um er að ræða fyrri leikina í einvígunum.

Íslandsmeistarar Víkings heimsækja Thun til Sviss í 3. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar. Spilað er á Arena Thun en leikurinn hefst klukkan 18:00.

Veðbankar hafa ekki mikla trú á Víkingi fyrir leikinn. Hjá Epicbet er stuðullinn 1,57 á sigur svissnesku meistaranna; 4,33 á jafntefli og 5,20 á sigur Víkings.
Allt undir hjá Víkingum - Andstæðingarnir í sögubækur fótboltans
TENGT EFNI

Allt undir hjá Víkingum - Andstæðingarnir í sögubækur fótboltans

Valur tekur á móti danska liðinu Nordsjælland á Hlíðarenda en leikið er í 3. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Hann hefst klukkan 18:30.

Epicbet er með stuðulinn 12,60 á sigur Vals; 6,72 á jafntefli og aðeins 1,20 á útisigur Nordsjælland sem hafnaði í þriðja sæti dönsku deildarinnar á síðasta tímabili.

Veðbankar hafa mjög litla trú á íslensku liðunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.