06.08.26
Allt undir hjá Víkingum - Andstæðingarnir í sögubækur fótboltans
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Víkingar eru staddir í Sviss þessa stundina þar sem liðið mun leika gegn meisturunum þar í landi, FC Thun, í fyrri leik liðanna í 3. umferð í undankeppni Evrópudeildarinnar. Víkingar töpuðu 0-2 fyrir Hapoel Be'er Sheva í síðustu viku, 2-3 samanlagt í einvíginu, og færðust því úr undankeppni Meistaradeildarinnar yfir í undankeppni Evrópudeildarinnar. Takist Víkingum að vinna Thun hefur liðið að minnsta kosti tryggt sér sæti í Sambandsdeildinni í annað sinn í sögu félagsins, en með sigri fer liðið í úrslitaeinvígi um sæti í Evrópudeildinni. Víkingar hafa fengið marga erfiða andstæðinga í sínum Evrópuævintýrum síðustu ár en svissnesku meistararnir eru lið sem erfitt er að staðsetja hvað erfiðleikastig varðar. Verða Víkingar með yfirhöndina eða koðna þeir niður gegn meistaraliði úr miklu stærri deild? Það kemur í ljós en hér verður farið yfir áhugaverða sögu FC Thun og hvernig liðið mætir til leiks í einvígið.

