Fotbolti.net
06.08.26 - 22:47
Snæbjört Pálsdóttir

„Við þurfum að fara að breyta þessum jafnteflum í sigra, það er nokkuð ljóst.“

Auglýsing
Óskar Smári Haraldsson var ósáttur með fyrri hálfleik Stjörnunnar gegn Þrótti en hrósaði liðinu fyrir viðbrögðin eftir hlé.

Óskar Smári Haraldsson var ósáttur með fyrri hálfleik Stjörnunnar gegn Þrótti en hrósaði liðinu fyrir viðbrögðin eftir hlé.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Stjarnan og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli á Samsungvellinum í kvöld í 15. umferð Bestu deildarinnar. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki sáttur með byrjun sinna kvenna í leiknum.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 Þróttur R.

„Fyrri hálfleikur var náttúrulega bara ógeðslega lélegur okkar hálfu. Við byrjuðum ekki leikinn. Þróttaraliðið mætti mjög sterkt til leiks og við ekki.“

„Í fyrri hálfleik að staðan sé 0-0 er ósanngjarnt vegna þess að Þróttur var töluvert betri en við. Þrátt fyrir það fáum við besta færið í fyrri hálfleik en við vorum bara mjög langt frá okkur. Orkustigið var lítið og við fórum ekki í þá pressu sem við ætluðum að fara í.“

„Kannski voru upplýsingarnar ekki nægilega góðar um hvernig við ætluðum að pressa fyrstu 20 mínúturnar. En mér fannst samt bara ákefðin og intensityið, Þróttur var yfir á öllum sviðum leiksins fyrstu 20-25 mínúturnar.“

Stjarnan kom betur út í síðari hálfleik og Óskar var ánægður með viðbrögðin.

„Mér fannst seinni hálfleikurinn miklu betri og miklu líkari því sem við erum að gera. Mér fannst við skora geggjað mark og vera með leikinn í teskeið.“

„Svo skora þær eftir einn langan bolta í teiginn á fjær og jafna. Eftir það var þetta bara fram og til bara í lokin og við þurfum að taka þetta stig, því miður.“

Þetta var annað jafntefli Stjörnunnar í röð á heimavelli og Óskar vill sjá liðið breyta slíkum leikjum í sigra.

„Ég hef gefið það mjög skýrt út að allir leikir, alveg sama við hvern við spilum, eigum við að vinna á heimavelli. Þetta er okkar heimavöllur.“

„Við þurfum að fara að breyta þessum jafnteflum í sigra, það er nokkuð ljóst.“

Óskar hrósaði Þrótti og sérstaklega Katie Cousins, sem var virkilega öflug inn á miðsvæðinu.

„Katie var mjög góð í dag. Við ætluðum að byrja á því að bera allar saman ábyrgð á henni en breyttum því eftir ellefu mínútur. Margrét Lea fór þá bara á hana og gerði það vel. Þetta var fyrsti byrjunarleikurinn hennar í sumar og mér fannst hún standa sig vel.“


Stjarnan var án Telmu, sem er farin út í skóla, og Ingibjargar, sem var í banni, í kvöld en Óskar var ánægður með þá leikmenn sem komu inn í byrjunarliðið og af bekknum.

„Telma er farin út til Bandaríkjanna í skóla og við erum að reyna að fylla það skarð vel. Hún er frábær leikmaður og búin að vera mjög góð í sumar, þannig að auðvitað er það mikill missir.“

„Auðvitað saknar maður leikmanna af kaliberi eins og Ingibjargar Lúciu, sérstaklega þess sem hún gefur okkar liði. Þú saknar hennar alltaf, það er morgunljóst.“

„Erika kom inn og tók Katie tvisvar, þrisvar og lét hana hafa fyrir því. Ég var mjög stoltur af henni. Hún fékk ein skilaboð, að vera nálægt henni varnarlega.“

Fréttir bárust í blaðamannastúkuna að Stjarnan hefur fengið nýjan hafsent inn í hópinn og Óskar staðfesti að félagið væri enn að skoða mögulegar styrkingar.

„Við erum alveg að skoða að styrkja liðið okkar. Þegar við fórum vel yfir þetta fannst okkur vanta smá innspýtingu inn í liðið fyrir seinni hlutann og við erum að taka inn öflugan hafsent.“

Aðspurður hvort annar leikmaður gæti bæst við sagði Óskar ekkert fast í hendi.

„Við erum aðeins að þreifa fyrir okkur en ekkert fast í hendi. Ég er mjög ánægður með hópinn minn eins og staðan er í dag.“

„Við erum með ungar stelpur sem við þurfum að blóðga. Við erum búin að skrifa undir hafsent og ég er gríðarlega ánægður með það. Ef það kemur ein í viðbót þá væri ég hæstánægður en ef ekki þá er allt í lagi.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.