Fotbolti.net
06.09.16 - 20:15
Þorsteinn Haukur Harðarson

Guðjón: Virðumst vera að finna Selfosshjartað aftur

Auglýsing
Guðjón: Virðumst vera að finna Selfosshjartað aftur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
<i>„Það er allt betra en tap en það sem ég er ánægðastur með eftir þennan leik er að við virðumst vera að finna Selfosshjartað aftur,\"</i> sagði Guðjón Bjarni Hálfdánarson, þjálfari Selfoss, eftir 1-1 jafntefli gegn FH í Pepsídeild kvenna í kvöld en eftir leikinn er Selfoss í fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.
„Það er mikil vinnsla í liðinu og við erum að skapa okkur færi. Við erum rosalega ánægð með það.\"

Stigið kom ekki í veg fyrir að Selfoss sé í fallsæti. Gerir þetta stig eitthvað fyrir liðið? „Öll stig hjálpa til. Það hjálpar líka til að koma til baka eftir að hafa lent 1-0 undir. Það eru mörg minni markmið sem við erum að sækjast eftir þó svo að við séum auðvitað að sækjast eftir þremur stigum. Margt smátt gerir eitt stórt.\"

Hann viðurkennir að markmiðin hafi verið stærri en að vera í fallbaráttu. „Ég held að það leggi ekkert lið upp með að vera í fallsæti þegar það fer inn í mótið en við eigum þrjá leiki eftir og það eru jákvæðir hlutir í gangi í okkar leik. Ég hef engar áhyggjur af því að við munum ekki landa einhverjum sigrum.\"

Guðjón hefur þó enn fulla trú á því að liðið bjargi sér frá falli. „Ég trúi á liðið mitt og ég trúi á að við verðum ennþá í þessari deild árið 2017.\"

Guðjón Borgþórsson, þjálfari karlaliðsins og fyrrum þjálfari kvennaliðsins, var í þjálfarateymi Selfyssinga í kvöld. „Selfoss býr að því að vera með marga góða þjálfara innan sinna raða og þegar við stöndum frammi fyrir erfiðleikum er leitað í reynsluna. Selfoss fjölskyldan sér til þess að liðið verði áfram í deildinni.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.