Mikael Breki: Helvítis ára yfir honum

Maður leiksins í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Maður leiksins í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum búnir að eiga frábæra æfingaviku og undirbúa okkur vel. Þetta er allt að fara að smella hjá okkur núna,'' sagði Mikael Breki Þórðarson, hetja KA, eftir 2-1 sigur á Breiðabliki í Bestu-deild karla í dag. Mikael skoraði sigurmark KA í dag og gerði einkar vel þegar hann sneri með boltann inná teig Breiðabliks og kláraði færið fagmannlega framhjá Antoni Ara Einarssyni.
Mikael hljóp líkast til hálft maraþon í dag og var lúsiðinn með og án boltans, hvernig leið honum inná vellinum?
„Heyrðu mjög vel, ég er búinn á því núna sko! En jú, bara mjög vel. Ég er aftur að komast í form, er búinn að vera mikið meiddur sem að tók mikið á en það er frábært að vera kominn aftur á völlinn og elska að gera þetta sem ég er að gera,'' sagði Mikael.
Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inn í þjálfarateymi KA og Mikael Breki er himinlifandi með hans innkomu.
„Frábært að fá hann. Það er helvítis ára yfir honum og hann veit ógeðslega mikið um fótbolta. Og þetta er bara svo mikil fyrirmynd fyrir mann, frábær leikmaður sjálfur svo að það er geðveikt að fá hann,'' sagði Mikael Breki Þórðarson.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
