Ólafur Ingi: Fannst sigurmarkið vera aukaspyrna

Ólafi fannst sitt lið vera með hugann 100% við verkefni dagsins, en framundan er bikarúrslitaleikur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafi fannst sitt lið vera með hugann 100% við verkefni dagsins, en framundan er bikarúrslitaleikur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Bara mikill baráttuleikur. Svosem viðbúið, vitandi að KA menn eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og mér fannst "matcha" það vel í dag, svona heilt yfir. Byrjuðum aðeins á hælunum og er refsað, fáum á okkur mark eftir horn og viðbrögðin við því eru góð. Mér finnst við líklegri það sem af er fyrri hálfleiks, svona til þess að vera það lið sem að bætir við. Svo í seinni hálfleik er svolítið sama uppá teningnum, bara mikil barátta og svona pínu tilviljanakennt inná milli,''</i> sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-1 tap gegn KA í Bestu-deild karla í dag. Blikar enda hefðbundið mót í 4. sætinu, með jafnmörg stig og ÍA, en Skagamenn sitja sæti neðar.
Ólafur Ingi taldi að sigurmark KA hefði ekki átt að standa: „Þeir skora þetta mark sem að mér fannst vera aukaspyrna, sérstaklega miðað við línuna fram að því hjá dómara leiksins og eftir það þá reynum við allt sem að við getum til að koma til baka og fáum nokkur ágætis færi. Ég held líka fyrir 2-1 markið, þá fannst mér við svona líklegri en við náum ekki að klára færin okkar.''
Framundan er úrslitaleikur Mjólkurbikarsins, þar sem að Breiðablik mætir Lengjudeildarmeisturum Aftureldingar. Var sá leikur í hausnum á Blikaliðinu?
„Það er auðvitað bara mannlegt eðli að bikarúrslitaleikurinn er mögulega aftan í kollinum á mönnum, en mér fannst það ekki vera sjáanlegt á liðinu í dag, bara klárlega ekki. Mér fannst við bara "matcha" KA í fýsíkinni og vera "all in" þegar að kom að þessum leik. En auðvitað vitum við alveg að innst inni, þá er það oft staðan. En mér fannst frammistaðan bara heilt yfir bara nokkuð góð í dag, en vorum klaufar í kringum teigana báða. Auðvitað súrir með að fara ekki með neitt héðan, en við tökum fullt með okkur líka,'' sagði Ólafur Ingi Skúlason.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
