Gylfi: Fáum aldrei betra tækifæri til að komast á HM
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum komnir beint í recovery. Það er ágætis ferðalag heim í nótt og auðvitað mikilvægur leikur á mánudaginn,\" sagði Gylfi Sigurðsson eftir öruggan 3-0 sigur Íslands á Tyrklandi í kvöld.
„Þetta var fullkominn varnarleikur,\" segir Gylfi um frammistöðu Íslands í kvöld. „Það er skrýtið að segja það en við gætum verið betri sóknarlega, en samt skoruðum við þrjú mörk á útivelli í Tyrklandi. Við erum auðvitað mjög ánægðir, bæði með okkar úrslit og önnur úrslit í riðlinum,\" sagði Gylfi.

„Leikplanið hjá okkur var að byrja vel, að byrja af krafti. Það var auðvitað mikilvægt að skora fyrsta markið og annað markið líka. Það kemur neikvæðni inn í þá og áhorfendurnir byrja að baula og það verður mikill æsingur. Þriðja markið var mikilvægasta markið.\"
Gylfi spilaði aftur í þessum leik en í síðustu leikjum.
„Það var fínt, auðvitað mikil varnarvinna og sérstaklega í þessum leik. Þetta gekk samt mjög vel.\"
Strákarnir eru núna með örlögin í höndum sér eftir að Finnar náðu að jafna gegn Króatíu í uppbótartíma í Króatíu. Gylfi segir að það hafi verið æðislegt að fá fréttir af jöfnunarmarki Finna.
„Það var æðislegt. Það var svolítið óþægilegt þar sem það var 91 mínúta búin þannig að maður bjóst við leiðinlegum tíðindum eftir það. Það er æðislegt að þetta sé í okkar höndum núna.\"
Með sigri á mánudaginn gegn Kosóvó fer Ísland á HM.
„Leikurinn gegn Kosóvó verður erfiður. Það verður erfitt að brjóta
þá niður, við fengum að finna fyrir því á móti þeim úti. En ég held við fáum aldrei betra tækifæri til að komast á HM.\"
Viðtalið í heild sinni er hér að ofan.