Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. október 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham fær tæpa milljón fyrir Josh Cullen (Staðfest)
Mynd: Getty Images
West Ham er búið að selja miðjumanninn Josh Cullen til Anderlecht. Kaupverðið er ekki gefið upp en talið nema á bilinu 500 þúsund til ein milljón evra.

Hinn 24 ára gamli Cullen er uppalinn hjá West Ham en þykir ekki nægilega góður til að veita samkeppni um byrjunarliðssæti. Hann hefur spilað tíu leiki fyrir West Ham og hefur varið síðustu tveimur tímabilum að láni hjá Charlton.

Cullen spilaði 66 leiki hjá Charlton en hann á einnig leiki að baki fyrir Bradford City og Bolton Wanderers.

Vincent Kompany vinnur hörðum höndum í því að styrkja leikmannahóp sinn í Anderlecht. Liðið er með þrettán stig eftir átta fyrstu umferðir belgíska tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner