Fotbolti.net
06.10.22 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Það er meiri stemning á Ibrox en Anfield"

„Það er meiri stemning á Ibrox en Anfield"
Canon

Mynd: EPA

Borna Barisic leikmaður Rangers segir að það sé betri stemning á Ibrox heimavelli skoska liðsins en á Anfield heimavelli Liverpool.

Liðin mættust á Anfield í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vikunni þar sem heimamenn höfðu betur 2-0. Liðin mætast aftur í næstu viku og þá á Ibrox.

„Það er mesta stemning í heiminum á Ibrox að mínu mati. Með fullri viðringu, en þá var góð stemning á Anfield. Það er ekki af því að ég spila með Rangers en það var ekki betri stemning en á Ibrox. Kannski er það af því ég hef spilað svo marga stóra leiki en Ibrox er að mínu bati með bestu stemninguna," sagði Barisic.

Hann segir jafnframt að liðið sé á réttri leið og hann sé sannfærður um að liðið muni gefa Liverpool góðan leik í næstu viku. Þá treystir hann á stuðningsmennina að vera tólfti maðurinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.