Fotbolti.net
06.10.26 - 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Conte hafnaði Arabíu: Vill taka við sögufrægu félagi

Conte hafnaði Arabíu: Vill taka við sögufrægu félagi
Canon

Mynd: EPA

Ítalski þjálfarinn Antonio Conte er sallarólegur þrátt fyrir að hafa fengið ýmis starfstilboð frá því að hann yfirgaf Napoli í sumar.
Allegri tekinn við af Conte (Staðfest)
TENGT EFNI

Allegri tekinn við af Conte (Staðfest)

Conte er 57 ára gamall og hefur meðal annars þjálfað Inter, Juventus, Chelsea og Tottenham á glæsilegum þjálfaraferli. Hann hefur einnig stýrt ítalska landsliðinu en á ferli sínum sem leikmaður lék hann 20 landsleiki fyrir Ítalíu og var í leikmannahópunum sem fengu silfur á HM 1994 og EM 2000.

Conte er eftirsóttur af félagsliðum og landsliðum um allan heim og segja ítalskir fjölmiðlar að hann hafi hafnað stóru tilboði frá Sádi-Arabíu. Conte dreymir um að taka við sögufrægu félagsliði sem er í erfiðleikum.

„Það er mikið af félagsliðum sem hafa misst sjónar á sögu sinni. Ég vil taka við hjá einu af þessum félögum til þess að hreinsa rykið af sögunni og láta hana skína skært á nýjan leik," sagði Conte í viðtali við The Athletic. „Ég vil taka við hjá félagi sem fylgir mikil pressa. Ég vil ekki fara einhvert bara til þess að taka þátt, ég vil keppast um titla."

Enskir fjölmiðlar hafa gripið þessi ummæli og orða hann við Manchester United.

Conte ræddi ýmislegt og meðal annars getumun enskra úrvalsdeildarfélaga og annarra félagsliða á leikmannamarkaðinum. Það er margfalt meiri peningur í enska boltanum heldur en í hinum fjórum stærstu deildum Evrópu.

„Í enska boltanum eru menn að nota sprengjuvörpur á meðan restin af Evrópu er ennþá með skammbyssur. Auðvitað þarf líka að gæta að því hvernig er farið með peningana, það hefur verið margsannað að peningar einir og sér eru ekki nóg til að byggja gott fótboltalið. Það þarf eitthvað meira."
Conte hafnaði Arabíu: Vill taka við sögufrægu félagi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.