Fotbolti.net
06.11.15 - 12:33
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá: úr Víkinni

Róbert: Hefði ekki verið í takt við FH að fá einhvern lakari

Auglýsing
Róbert skrifar undir í dag.

Róbert skrifar undir í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er mjög gott að vera kominn hingað. Þetta er metnaðarfullt félag og Milos, gamall félagi, er við stjórnvölinn hérna,\" sagði markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson eftir að hann skrifaði undir samning við Víking í dag.
Róbert hefur varið mark FH undanfarin þrjú ár en hann ákvað að róa á önnur mið eftir að Gunnar Nielsen samdi við Íslandsmeistarana í síðustu viku.

„Ég gerði mér grein fyrir því að þeir væru að skoða nýjan markmann. FH er þannig klúbbur og að stefna á þannig markmið að það eru tveir menn í hverri stöðu og markmaðurinn er ekki undantekning þar. Það hefði ekki verið í takt við FH að fá einhvern lakari,\" sagði Róbert sem segist ekki vera fúll út í FH.

„Nei, enganveginn. Þetta er bara fótbolti. Þetta eru allt vinir mínir og ég get horfst í augu við þá alla. Það var rosalega erfitt að fara en ég tók þessa ákvörðun og ég stend með henni,\" sagði Róbert sem útilokar ekki að fara aftur í FH síðar.

Fleiri félög höfðu áhuga á að fá Róbert í sínar raðir en hann ákvað að velja Víking.

„Það kom mér á óvart hvað mörg lið voru að reyna við kallinn en Víkingur hafði langmestan áhuga. Það var engin spurning að semja hér.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.