Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. janúar 2020 10:37
Elvar Geir Magnússon
Liverpool, Chelsea og Tottenham skoða Ben White
Ben White.
Ben White.
Mynd: Getty Images
Liverpool, Chelsea og Tottenham eru öll sögð hafa áhuga á Ben White, varnarmanni Brighton. Þessi 22 ára leikmaður hefur spilað frábærlega á lánssamningi hjá Leeds á þessu tímabili.

White hefur enn ekki spilað leik í úrvalsdeildinni en hann er uppalinn hjá Brighton en hefur verið lánaður til Newport County, Peterborough og nú Leeds.

White hefur spilað 25 deildarleiki fyrir Leeds á þessu tímabili og var valinn leikmaður mánaðarins í Championship-deildinni í ágúst. Þá valdi Sky Sports hann besta unga leikmann deildarinnar.

Hann lék allan leikinn gegn Arsenal í FA-bikarnum í gær en gat ekki komið í veg fyrir 1-0 sigur Arsenal.

Leeds er á toppi Championship-deildarinnar og setur stefnuna á að komast upp í deild þeirra bestu. Liðið mætir Sheffield Wednesday í Jórvíkurslag á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner