Fotbolti.net
07.01.23 - 12:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Badiashile spenntur að spila með Fofana

Badiashile spenntur að spila með Fofana
Canon

Mynd: Chelsea

Benoit Badiashile nýjasti varnarmaður Chelsea er spenntur að spila með landa sínum, Wesley Fofana en þeir þekkjast vel.

„Við höfum spilað saman í landsliðinu og ég er mjög ánægður með að vera samherji hans hér," sagði Badiashile.

„Svo eru risa nöfn í klefanum eins og Thiago Silva, goðsögn. Hann er leikmaður sem ég lýt upp til og er mjög ánægður að fá tækifæri til að spila við hlið hans. Svo er N'Golo Kante, við vitum öll hvað hann gefur félaginu."

Fofana er frá vegna meiðsla en það er búist við því að hann verði klár í slaginn í febrúar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.