Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   sun 07. febrúar 2021 17:05
Victor Pálsson
Spánn: Fyrsti deildarsigur Sociedad á árinu
Real Sociedad nældi loksins í þrjú stig í spænsku úrvalsdeildinni í dag er liðið mætti Cadiz á heimavelli sínum í 22. umferð.

Eftir góða byrjun hefur gengi Sociedad ekki verið gott síðustu vikur og hafði liðið aðeins unnið einn deildarleik síðan þann 22. nóvember gegn einmitt Cadiz.

Liðið vann Athletic Bilbao 1-0 á lokadegi ársins 2020 og var það eini deildarsigurinn í 11 leikjum síðan í nóvember.

Sigurinn í dag var þó aldrei í höfn en þeir Mikel Oyarzabal og Alexander Isak gerðu báðir tvö mörk í leik sem lauk, 4-1.

Cadiz spilaði manni færri allan seinni hálfleikinn en Marcos Mauro fékk beint rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir olnbogaskot.

Sociedad er í sjötta sæti deildarinnar með 35 stig en er 15 stigum frá toppliði Atletico Madrid sem hefur leikið þremur leikjum minna.

Öðrum leik var þá að ljúka rétt í þessu en það var viðureign Athletic Bilbao og Valencia.

Þeim leik lauk með 1-1 jafntefliþar sem Gabriel, fyrrum hafsent Arsenal, sá um að tryggja gestaliðinu eitt stig.

Real Sociedad 4 - 1 Cadiz
1-0 Mikel Oyarzabal('26, víti)
2-0 Mikel Oyarzabal('34)
3-0 Alexander Isak('54)
4-0 Alexander Isak('59)
4-1 Jairo Izquierdo('65)

Athletic Bilbao 1 - 1 Valencia
1-0 Hugo Sanmartin('43, sjálfsmark)
1-1 Gabriel('65)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 28 23 1 4 77 28 +49 70
2 Real Madrid 28 21 3 4 60 24 +36 66
3 Atletico Madrid 28 17 6 5 47 25 +22 57
4 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
5 Betis 28 11 11 6 43 35 +8 44
6 Celta 28 10 11 7 38 31 +7 41
7 Real Sociedad 28 10 8 10 43 42 +1 38
8 Espanyol 28 10 7 11 35 42 -7 37
9 Getafe 28 10 5 13 23 30 -7 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 28 9 7 12 33 35 -2 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Vallecano 28 7 11 10 28 34 -6 32
14 Valencia 28 8 8 12 30 42 -12 32
15 Sevilla 28 8 7 13 37 47 -10 31
16 Mallorca 28 7 7 14 33 45 -12 28
17 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
18 Elche 28 5 11 12 36 45 -9 26
19 Levante 28 5 8 15 30 46 -16 23
20 Oviedo 28 4 9 15 18 44 -26 21
Athugasemdir
banner
banner
banner