þri 07.apr 2020 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Ágúst: Ætla að fara aftur út eftir þetta tímabil
Ágúst Eðvald Hlynsson gekk í raðir Reykjavíkur Víkings fyrir tímabilið 2019. Hann hafði verið árin áður hjá Bröndby í Danmörku.
Hann lék með Þór á Akureyri fyrstu árin í yngri flokkunum en þegar fjölskyldan flutti suður fór hann í Breiðablik. Hjá Breiðabliki fékk hann ungur tækifæri hjá meistaraflokknum og vakti athygli liða erlendis. Norwich varð fyrir valinu hjá Gústa en fréttaritari vildi kafa dýpra í feril Ágústs til þessa.
Þar sem ég varð Íslandsmeistari í 6. flokki með Þór þá á ég bara eftir að verða Íslandsmeistari í meistaraflokki svo að ég haki í öll boxin.
Arnar Grétars hafði mikla trú á mér og henti mér inn í meistaraflokkshópinn bara 15 ára gömlum. Ég á honum mikið að þakka.
En ég skoðaði ekki aðstæður hja liðum eins og Ajax, Liverpool, Manchester City, Wolfsburg og FCK sem ég hefði getað valið á þessum tíma
Síðasta sumar var virkilega skemmtilegt. Við auðvitað náum að vinna bikarinn og við spiluðum skemmtilegan fótbolta.
Nei ég þarf ekkert sýna Kristiani neitt. Ég pakka honum alltaf saman þótt hann sé að verða helvíti góður.
Við byrjum yfirferðina á Akureyri en þar steig Ágúst sín fyrstu skref í yngri flokkunum. Kom aldrei til greina að æfa annars staðar en hjá Þór?
„Nei það kom ekkert annað til greina en að spila með Þór. Pabbi hafði verið fyrirliði meistaraflokks félagsins og hann var einnig að þjálfa hjá félaginu þannig þetta segir sig pínu sjálft," sagði Ágúst við Fótbolta.net.
Er eitthvað eftirminnilegt frá árunum með Þór?
„Já þetta var geggjaður tími. Við í 2000 árganginum unnum öll mót sem við tókum þátt í þannig þetta var mjög góður tími."
„þá á ég bara eftir að verða Íslandsmeistari í meistaraflokki svo að ég haki í öll boxin."
Hélt áfram að vinna mót hjá Breiðabliki
Fjölskylda Ágústs flytur suður og áfram gengur vel hjá hans liðum. Var einhver sérstök ástæða fyrir því að Breiðablik varð fyrir valinu? Kom eitthvað annað til greina?
„Við flytjum í Kópavoginn því pabbi fer að þjálfa hjá Breiðabliki og ég vissi að 2000 árgangurinn og flokkarnir í kring væru mjög sterkir. Ég var búinn að mæta þessum strákum í úrslitaleikjum í gegnum tíðina þannig nei það kom ekkert annað til greina og frábær staður til þess að bæta sig á."
Í fréttum hjá Fótbolta.net kemur fram að Ágúst og hans lið hafi orðið meistari í 5. og 4. flokki. Var þetta óstöðvandi lið?
„Þetta voru frábærir tímar. Við vorum með geggjað lið og töpuðum varla leik. Ég var líka Íslandsmeistari í 3. flokki og síðan 2. flokki. Ég spilaði þó lítið með öðrum flokknum því ég var kominn í meistaraflokkshópinn á þeim tíma.
„Þar sem ég varð Íslandsmeistari í 6. flokki með Þór þá á ég bara eftir að verða Íslandsmeistari í meistaraflokki svo að ég haki í öll boxin."
Tvöfaldur Íslandsmeistari í júdó
Ágúst segir frá því í 'Hinni hliðinni' að hann hafi orðið Íslandsmeistari í júdó árið 2010 og svo aftur 2011. Hvernig kom það til að hann byrjaði að æfa júdó?
„Pabbi henti mér í Júdógallann þegar ég var sex ára gamall. Það var frábært að blanda því við fótboltann og hefur hjálpað mér mikið síðan. Þar er allt önnur nálgun heldur en í fótboltanum. Þar fékk ég mikinn líkamlegan styrk og varð sterkari í hausnum."
Ágúst segist í 'Hinni hliðinni' hafa hætt á toppnum en af hverju hætti hann?
„Ég varð að hætta þegar ég flutti suður því það voru ekki júdó æfingar í Kópavogi."
Boðið í heimsóknir til stórliða
Við leit fann fréttaritari fréttir af því að Ágúst hafi farið út á reynslu til Swansea í Wales og Köln í Þýskalandi. Þá segir einnig frá því að Ajax hafi verið að fylgjast með Ágústi. Voru fleiri lið sem buðu Ágústi út?
„Reynslunar eða heimsóknirnar voru mjög margar. Ég vildi sjá muninn á milli landa og liða, hvað myndi henta mér og svo skipti einning máli hvernig planið var með mig hjá þessum klúbbum."
„Ég get nefnt lið eins og AZ Alkmaar, PSV, Feyenoord - þetta voru allt spennandi klúbbar sem komu vel til greina eins og Köln og Swansea. En ég skoðaði ekki aðstæður hja liðum eins og Ajax, Liverpool, Manchester City, Wolfsburg og FCK sem ég hefði getað valið á þessum tíma."
Kom ekki til greina að semja við eitt af þessum liðum?
„Það kom alveg til greina að velja eitt að þessum liðum en á endanum valdi ég kannski minnsta klúbinn, Norwich City."
Fékk tækifærið árið 2016
Ágúst lék sína fyrstu mótsleiki með meistaraflokki Breiðabliks sumarið 2016. Hann varð yngsti markaskorari í sögu félagsins þegar hann skoraði í bikarnum og bætti þar met þáverandi þjálfara síns, Arnars Grétarssonar. Hvernig var að koma inn í lið Breiðabliks á þessum tíma?
„Það var ótrulega skemmtilegt að koma inn í Blika-liðið á þessum tíma. Arnar Grétars hafði mikla trú á mér og henti mér inn í meistaraflokkshópinn bara 15 ára gömlum. Ég á honum mikið að þakka."
Hvernig fannst Ágústi sér persónulega ganga í þessum leikjum og hvað er eftirminnilegast frá þessu sumri?
„Mér fannst ég standa mig mjög vel í þeim leikjum sem ég spilaði og leikirnir sem ég tek út úr eru Evrópuleikirnir sem ég tók þátt í sem og leikurinn við ÍA í bikarnum sem ég skoraði í."
„Leikirnir sem ég fékk þetta sumarið hefðu getað orðið fleiri því ég var kominn ansi nálægt byrjunarliðssæti þegar ég tek ákvörðun um að fara erlendis."
Æfði reglulega með aðalliði Norwich
Eins og Ágúst kom sjálfur að hér að ofan þá valdi hann að ganga í raðir Norwich. Hann fer út í september 2016 og fær leikheimild í janúar 2017. Af hverju varð Norwich fyrir valinu?
„Norwich kom með besta planið af öllum þessum liðum sem vildu fá mig. Allur klúbburinn var á bakvið það að sækja mig og það skipti máli. Klúbburinn tók fjölskylduna með út og pabbi fékk starf hjá Norwich. Kristian litli bróðir fékk líka að æfa hjá félaginu."
Hvernig var tíminn hjá Norwich?
„Fyrsta hálfa árið var mjög gott. Ég æfði mjög reglulega með aðalliðinu og spilaði með varaliðinu og var aðð gera vel. Alex Neil þjálfari liðsins var síðan látinn fara sem og Ricky Martin framkvæmdarstjóri félagsins einnig ásamt flestum þjálfurum hjá félaginu og forsendur breyttust."
Hvaða forsendur voru það og af hverju varð Bröndby í Danmörku fyrir valinu sem næsta skref?
„Ég var settur í 18 ára liðið og það fór illa í mig á þessum tíma og í kjölfarið bað ég um sölu. En eftir á hyggja var það algjörlega vitlaus og fljótfærnis ákvörðun því svo hafa strákarnir sem voru í sömu stöðu og ég blómstrað."
„Þar get ég nefnt dæmi eins og Max Aarons, Todd Cantwell, Ben Godfrey og Jamal Lewis. Hélt svo að Bröndby IF væri fullkominn staður til að fara á eftir gott samtal við þá."
Fannst eiga skilið meira hjá stefnulausu félagi
Ágúst gekk í raðir Bröndby haustið 2017 og var hjá félaginu í eitt og hálft ár. Hvernig var tíminn í Danmörku?
„Bröndby tíminn var mjög sérstakur, sama hversu vel ég var að standa mig stóðst einhvernveginn lítið af því sem þeir sögðu. Félagið vissi lítið á þessum tíma hvað þeir ætluðu að gera við unga og efnilega leikmenn."
Ágúst segir í 'Hinni hliðinni' að það hefðu verið mikil vonbrigði að hafa ekki náð að spila keppnisleik með aðalliði Bröndby. Var hann nálægt því?
„Já það voru mikil vonbrigði að spila ekki deildarleik fyrir þá en ég fékk fullt af æfingarleikjum með þeim og náði eftirminnilega að leggja upp mark á Teemu Pukki (sem í dag leikur með Norwich) en heilt yfir voru það vonbrigði að hafa ekki komist alla leið hjá félaginu því mér fannst ég hafa átt það skilið."
Eftir samtal við Arnar kom ekkert annað til greina
Ágúst gengur í raðir Víkinga fyrir síðasta tímabil og tekur þátt í 21 leik í deildinni og öllum bikarleikjum liðsins sem varð bikarmeistari. Af hverju varð Víkingur fyrir valinu? Hvernig sannfærði Arnar Gunnlauggson, þjálfari Víkings, Ágúst um að koma í Víkina?
„Ég tek ákvörðun um að koma heim til Íslands til að spila meistaraflokksbolta í hverri viku. Eftir að hafa átt spjall við Arnar þá kom aldrei neitt annað til greina en að velja Víkinga. Það hvernig hann vill að fótbolti sé spilaður heillar alla held ég."
Hvernig gerir Ágúst upp síðasta sumar og er hann sáttur með það þegar hann lítur til baka?
„Síðasta sumar var virkilega skemmtilegt. Við auðvitað náum að vinna bikarinn og við spiluðum skemmtilegan fótbolta."
„Persónulega var ég bara nokkuð sáttur með mitt fyrsta heila meistaraflokkstímabil ég kom beint að níu mörkum og spilaði allar mínúturnar þannig á heildina litið var þetta mjög gott tímabil."
Pakkar alltaf litla bróður saman
Enn er komið inn á það sem Ágúst sagði í 'Hinni hliðinni' en hann kemur þar inn á að hann mætti litla bróður sínum, Kristiani Nökkva, í æfingaleik á síðasta ári. Hvernig var að mæta bróður sínum og kom upp sú tilfinning að þurfa að sýna hvor væri betri bróðirinn?
„Það var mjög gaman að mæta Kristiani í þessum æfingaleik þar sem við eigum mjög náið og gott samband."
„Nei ég þarf ekkert sýna Kristiani neitt. Ég pakka honum alltaf saman þótt hann sé að verða helvíti góður."
Ætlar sér út eftir tímabilið
Að lokum er það komandi tímabil. Hver eru markmið Gústa og hver eru markmið Víkings?
„Persónulegt markmið er að bæta við frá síðasta ári sem er þá að halda áfram að spila alla leiki og koma að fleiri mörkum því ég ætla mér aftur út erlendis eftir þetta tímabil."
„Markmið liðsins er svo klárlega að endurtaka leikinn og lyfta aftur upp dollu í haust," sagði Ágúst að lokum.
Sjá einnig:
Hin hliðin - Ágúst Hlynsson (Víkingur R.)
Athugasemdir