Caglar Söyuncu, varnarmaður Leicester, segist ætla að halda tryggð við félagið þrátt fyrir að hafa verið orðaður við Manchester City í vetur.
Eftir að Harry Maguire fór til Manchester United fékk Soyuncu sénsinn og hann hefur átt frábært tímabil með Leicester.
Eftir að Harry Maguire fór til Manchester United fékk Soyuncu sénsinn og hann hefur átt frábært tímabil með Leicester.
„Ég held að það væri ekki rétt að fara eitthvert annað núna. Ég er að eiga gott tímabil og ég á fyrst og fremst eftir að læra mikið," sagði Söyuncu í viðtali í heimalandi sínu Tyrklandi.
„Hann (Maguire) er dýrasti varnarmaður í heimi og liðið keypti ekki nýjan því það treysti á mig. Þú spilar í staðinn fyrir mann sem er keyptur á 80 milljónir punda."
„Okkur gengur vel núna en það mikilvægasta er að halda áfram. Ég er búinn að spila 30 leiki en það er mikilvægast núna að ná þessu í þriggja stafa tölu. Það er mikilvægt að halda stöðugleika á ferlinum."
Athugasemdir