Fotbolti.net
20.06.26 - 17:39
Brynjar Ingi Erluson

Segir Gyökeres og Isak ekki virka saman frammi hjá Svíum

Alexander Isak

Alexander Isak

Canon

Mynd: EPA

Michael Cox hjá Athletic segir það ekki ganga upp hjá Svíum að hafa Alexander Isak og Viktor Gyökeres saman frammi.
Brobbey tvöfaldaði forystuna - Verður hann sá þriðji til að skora þrennu?
TENGT EFNI

Brobbey tvöfaldaði forystuna - Verður hann sá þriðji til að skora þrennu?

Svíar byrjuðu leikinn gegn Hollendingum illa og eru 2-0 undir.

Cox segir það einfaldlega ekki ganga upp að hafa Isak og Gyökeres saman á toppnum.

„Þrátt fyrir allt það góða gegn Túnis þá er þetta ástæðan fyrir því að samvinna Isak og Gyökeres virkar ekki. Þeir halda sér báðir ofarlega á vellinum, bjóða ekki upp á neitt án boltans og koma ekki niður í stutt samspil. Það gerir þetta yfirþyrmandi fyrir hina átta útileikmennina.

„Það er engin tilviljun að Svíþjóð vann báða umspilsleikina þegar Graham Potter neyddist til að vera án Isak. Það er samt ekki hægt að hafa hann utan liðs þegar hann er heill, en þessi tveggja framherja uppstilling mun ekki virka gegn stóru liðunum,“
sagði Cox.

Cox gæti þurft að éta sokk sinn eftir vatnspásuna því þeir hafa náð frábærri tengingu eftir hana og skapað sér góðar stöður. Svíar færast sífellt nær fyrsta markinu.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Viktor Gyökeres í leiknum

Viktor Gyökeres í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.