Fotbolti.net
20.06.26 - 18:26
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Rafmögnuð byrjun á síðari hálfleiknum - Gakpo með tvö

Cody Gakpo skorar gegn Svíum

Cody Gakpo skorar gegn Svíum

Canon

Mynd: EPA

Markaregnið heldur áfram í leik Hollands og Svíþjóðar, en Hollendingar leiða nú 4-1.
Arnar bendir á veikleika Hollendinga - „Vona að þeir læri þá lexíu“
TENGT EFNI

Arnar bendir á veikleika Hollendinga - „Vona að þeir læri þá lexíu“

Svíar, sem lentu 2-0 undir snemma leiks, komu áræðnir til baka eftir vatnspásuna og voru óheppnir að minnka ekki muninn, og jafnvel jafna metin, áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Strax í upphafi síðari hálfleiks gerði Gakpo hins vegar nánast út um leikinn með tveimur mörkum á nokkrum mínútum.

Denzel Dumfries átti fyrirgjöf frá hægri á fjærstöngina á Gakpo, sem var aleinn og óvaldaður og í engum vandræðum með að setja boltann í netið.

Sjáðu fyrsta mark Gakpo

Gakpo gerði annað mark sitt stuttu síðar með sínu helsta vopni þegar hann færði boltann af vinstri yfir á hægri og skaut honum neðst í nærhornið.

Sjáðu annað markið hjá Gakpo

Það er þó engin uppgjöf í Svíum, sem náðu að minnka muninn í 4-1 stuttu síðar þegar Anthony Elanga slapp í gegn og kláraði frábærlega vinstra megin við Bart Verbruggen.

Sjáðu markið hjá Elanga
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.