Tottenham hefur viðræður við Newcastle um Tonali

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham hefur hafið viðræður við Newcastle United um ítalska miðjumanninn Sandro Tonali. Þetta segir hinn áreiðanlegi David Ornstein hjá Athletic.
Lundúnafélagið blandaði sér á dögunum í baráttuna um Tonali, en áhuginn er drifinn áfram af Roberto De Zerbi, stjóra Tottenham.
Tottenham þarf að berjast við Manchester City um undirskrift ítalska landsliðsmannsins, en félagið virðist alls ekki hrætt við þá samkeppni.
Ornstein segir að Tottenham hafi opnað viðræður við Newcastle um Tonali. Samkvæmt honum hefur félagið einnig rætt við föruneyti Tonali og vonast til þess að ná samkomulagi við leikmanninn á næstunni.
Newcastle hefur sett 100 milljóna punda verðmiða á miðjumanninn, en hann er samningsbundinn félaginu næstu þrjú árin með möguleika á fjórða árinu.
Tottenham heldur í vonina um að hátt launatilboð, þrýstingur frá De Zerbi og töfrar Lundúna hjálpi félaginu að sannfæra Tonali um að ganga í raðir þess.