Fotbolti.net
20.06.26 - 17:11
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Tók Hollendinga tæpar fimm mínútur að skora

Brian Brobbey var að koma Hollendingum yfir

Brian Brobbey var að koma Hollendingum yfir

Canon

Mynd: EPA

Hollenski sóknarmaðurinn Brian Brobbey var ekki lengi að stimpla sig inn í byrjunarliði landsliðsins, en hann var að koma Hollendingum í 1-0 gegn Svíum.
Brobbey var ekki í byrjunarliðinu í fyrstu umferðinni í 2-2 jafnteflinu gegn Japan.

Hann kom inn af bekknum gegn Japan og fékk tækifærið í dag og var ekki lengi að þakka traustið.

Langur bolti kom fram völlinn og átti Brobbey frábæra snertingu á Tijjani Reijnders sem færði boltann út á vinstri vænginn á Cody Gakpo sem átti hárnákvæma fyrirgjöf á Brobbey sem kláraði færið örugglega. Annað landsliðsmark hans og hans fyrsta á HM.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Brobbey hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.