Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   mið 07. apríl 2021 09:51
Magnús Már Einarsson
Alexander-Arnold og Keita urðu fyrir kynþáttafordómum
Trent Alexander-Arnold og Naby Keita, leikmenn Liverpool, urðu báðir fyrir kynþáttafordómum á samfélagsmiðlum eftir 3-1 tap liðsins gegn Real Madrid í gær.

Báðir leikmennirnir fengu send skilaboð við myndir sem þeir höfðu birt á Instagram í aðdraganda leiksins.

Aðilar birtu meðal annars mynd af apa í ummælakerfum við myndir af leikmönnunum.

Sky Sports News segir að Facebook, sem á Instagram, sé að rannsaka málið.
Athugasemdir
banner
banner