Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 07. maí 2022 17:44
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Dalvík/Reynir vann fjögurra marka sigur - Tvö jöfnunarmörk í lokin
Dalvík/Reynir vann öruggan sigur á KH
Dalvík/Reynir vann öruggan sigur á KH
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Arnar Laufdal Arnarsson (t.v.) skoraði jöfnunarmark Augnabliks undir lokin gegn Elliða
Arnar Laufdal Arnarsson (t.v.) skoraði jöfnunarmark Augnabliks undir lokin gegn Elliða
Mynd: Augnablik
Fyrstu umferð 3. deildar karla lauk í dag með fjórum leikjum en Dalvík/Reynir vann öruggan 4-0 sigur á KH á meðan KFS lagði ÍH, 2-1.

Dalvík/Reynir skoraði öll fjögur mörk sín í fyrri hálfleiknum gegn KH. Þröstur Mikael Jónasson skoraði strax á 3. mínútu og svo bættu þeir Matthew Woo Lings, Vilhelm Ottó Biering Ottósson og Borja Lopez Laguna við þremur mörkum áður en hálfleikurinn var úti.

Góður sigur heimamanna og liðið á toppnum eftir fyrstu umferðina.

Ásgeir Elíasson skoraði tvö mörk út víti á tæpum þremur mínútum í 2-1 sigri KFS á ÍH og þá tryggði Arnar Laufdal Arnarsson stig fyrir Augnablik með marki undir lok leiks í 1-1 jafntefli gegn Elliða.

Andri Júlíusson gerði slíkt hið sama fyrir Kára í 1-1 jafntefli gegn Sindra en hann jafnaði úr víti í uppbótartíma.

Úrslit og markaskorarar:

Dalvík/Reynir 4 - 0 KH
1-0 Þröstur Mikael Jónasson ('3 )
2-0 Matthew Woo Ling ('12 )
3-0 Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('26 )
4-0 Borja Lopez Laguna ('44 )

Elliði 1 - 1 Augnablik
1-0 Hlynur Magnússon ('73 )
1-1 Arnar Laufdal Arnarsson ('90 )

KFS 2 - 1 ÍH
1-0 Ásgeir Elíasson ('27, víti )
2-0 Ásgeir Elíasson ('29, víti )
2-1 Arnar Sigþórsson ('79 )

Sindri 1 - 1 Kári
1-0 Robertas Freidgeimas ('78 )
1-1 Andri Júlíusson ('90, víti )
Athugasemdir
banner
banner
banner